Cattermole með nýjan fimm ára samning

Lee Cattermole, lengst til vinstri.
Lee Cattermole, lengst til vinstri. AFP

Hinn vel gyrti Lee Cattermole skrifaði í dag undir nýjan fimm ára samning við enska úrvalsdeildarliðið Sunderland.

Cattermole er 27 ára gamall harðskeyttur miðjumaður sem leikið hefur með Sunderland frá árinu 2009 en áður lék hann með Wigan og Middlesbrough. Hann hefur spilað fyrir öll yngri landslið Englands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert