Nani kominn til Fenerbache

Nani í leik með Sporting Lissabon í vor.
Nani í leik með Sporting Lissabon í vor. AFP

Tyrkneska knattspyrnufélagið Fenerbache tilkynnti fyrir stundu að gengið hefði verið frá kaupum á portúgalska kantmanninum Nani frá Manchester United og að hann yrði kynntur formlega til leiks hjá félaginu síðar í dag.

Nani hefur verið í röðum Manchester United í átta ár en var lánaður til Sporting í Portúgal á síðasta tímabili. Hann er 28 ára gamall og kom til United frá Sporting árið 2007, og á að baki 147 leiki í ensku úrvalsdeildinni þar sem hann skoraði 25 mörk. Nani á 86 landsleiki að baki fyrir Portúgal og hefur skorað í þeim 15 mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert