Adebayor í læknisskoðun hjá Aston Villa

Emmanuel Adebayor er á leið til Aston Villa.
Emmanuel Adebayor er á leið til Aston Villa. AFP

Enska úrvalsdeildarfélagið Aston Villa er hársbreidd frá því að ganga frá kaupum á Emmanuel Adebayor frá Tottenham Hotspur, en leikmaðurinn er á leið í læknisskoðun hjá Villa.

Adebayor, sem er 31 árs gamall, sást á æfingasvæði Aston Villa fyrir nokkrum klukkustundum síðan, en hann er við það að ganga frá samningum við félagið.

Leikmaðurinn spilaði einungis þrjá leiki með Tottenham á þessu ári undir stjórn Mauricio Pochettino, en hann vonast til þess að spila meira undir stjórn Tim Sherwood hjá Villa.

Villa seldi Christian Benteke til Liverpool á dögunum fyrir 32,5 milljónir punda og hefur því Sherwood nóg á milli handanna til þess að fjárfesta í öflugum kostum í framlínuna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert