Brendan Rodgers knattspyrnustjóri Liverpool hefur ekki lokið af sér af á leikmannamarkaðnum.
Rodgers hefur verið iðinn við kolann í sumar og hefur fengið til liðs við sig sex nýja leikmenn og sá sjöundi gæti verið á leiðinni.
Franskir fjölmiðlar greina frá því að Liverpool sé í viðræðum við Paris SG um kaup á vinstri bakverðinum Lucas Digne en leikmaðurinn, sem er 22 ára gamall Frakki, hefur tjáð Laurent Blanc þjálfara Parísarliðsins að hann vilji komast í burtu frá félaginu.