United tapaði fyrir Paris SG (myndskeið)

Wayne Rooney með boltann en til varnar er Benjamin Stambouli.
Wayne Rooney með boltann en til varnar er Benjamin Stambouli. AFP

Paris SG hrósaði sigri á Alþjóða knattspyrnumótinu með því að leggja Manchester United að velli, 2:0, í úrslitaleik í Chicago í Bandaríkjunum í nótt að íslenskum tíma.

Parísarliðið gerði út um leikinn í fyrri hálfleik. Blaise Matuidi skoraði fyrra markið á 25. mínútu og það síðara skoraði Svíinn Zlatan Ibrahimovic níu mínútum síðar þegar liðið tætti í sig vörn Manchester-liðsins, sem var ekki sannfærandi í leiknum.

Þetta var fyrsti tapleikur Manchester United á undirbúningstímabilinu en liðið mætir Tottenham í fyrsta leik ensku úrvalsdeildarinnar þann 8. ágúst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert