Sá nýi snöggur að skora

Rickie Lambert er byrjaður að skora fyrir WBA.
Rickie Lambert er byrjaður að skora fyrir WBA. AFP

Framherjinn Rickie Lambert var ekki lengi að reima á sig skotskóna eftir að hann gekk til liðs við West Bromwich Albion í dag frá Liverpool.

Lambert fór beint í æfingaleik með WBA gegn Bristol Rovers í kvöld og strax á 23. mínútu var hann búinn að skora sitt fyrsta mark fyrir félagið og koma því yfir. Lambert var aftur á ferðinni á fyrstu mínútu seinni hálfleiks og skoraði því tvö mörk í 4:0 sigri WBA.

Hann er þriðji leikmaðurinn sem WBA hefur fengið til sín í sumar en áður voru komnir þeir James McClean frá Wigan og James Chester frá Hull City.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert