Soldado vill fara til Spánar

Roberto Soldado.
Roberto Soldado. AFP

Spænski framherjinn Roberto Soldado vill fara til spænska liðsins Villareal og binda þar með enda á tveggja ára veru sínu hjá enska úrvalsdeildarliðinu Tottenham.

Villareal vill fá Soldado til liðs við sig en hann hefur engan veginn staðið undir væntingum hjá Tottenham. Hann hefur aðeins skorað 16 mörk á tveimur tímabilum með Lundúnaliðinu,

Tottenham keypti Spánverjann frá Valencia fyrir tveimur árum og greiddi fyrir hann 26 milljónir punda en gæti þurft að selja hann nú fyrir aðeins 12 milljónir punda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert