„Undarleg tilfinning“

Wayne Rooney í búningi Everton.
Wayne Rooney í búningi Everton. Ljósmynd/evertonfc.com

Wayne Rooney segir að það hafi verið undarleg tilfinning að klæðast Everton treyjunni á nýjan leik en hann lék síðasta stundarfjórðunginn með sínu gamla liði í dag þegar hann tók þátt í ágóðaleik fyrir Duncan Ferguson.

„Að fara aftur inn í klefann og klæða sig í treyjuna var undarleg tilfinning,“ sagði Rooney eftir leikinn en hann yfirgaf uppeldisfélag sitt árið 2004 þegar hann gekk í raðir Manchester United.

„Ég var svolítið taugaóstyrkur þar sem ég vissi ekki hverju ég átti von á. En ég fékk frábærar móttökur og ég var virkilega ánægður með. Það var líka gaman fyrir börnin mín að sjá mig spila í Everton treyjunni,“ sagði fyrirliði Manchester United.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert