Bolton gerir nýjan samning við Heskey

Eiður Smári Guðjohnsen og Emile Heskey.
Eiður Smári Guðjohnsen og Emile Heskey. Ljósmynd/Twitter-síða BWFC

Emile Heskey samþykkti nýjan árssamning við Bolton Wanderers í dag. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. 

Trukkurinn Heskey gekk til liðs við Bolton í desember síðastliðinn, um svipað leyti og Eiður Smári. Hann lék 18 leiki og skoraði eitt mark. Eiður Smári, sem lék 21 leik og skoraði 5 mörk fyrir Bolton, ákvað ekki að framlengja við Bolton eins og flestum er kunnugt en hann gekk til liðs við Shijiazhuang í Kína.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert