Markovic lánaður frá Liverpool

Lazar Markovic í leik með Liverpool á síðasta tímabili.
Lazar Markovic í leik með Liverpool á síðasta tímabili. AFP

Lazar Markovic er á leið frá Liverpool og verður lánaður til Fenerbahce í Tyrklandi, en Sky greinir frá þessu í kvöld. Hann mun verða lánaður út tímabilið, en hann er hugsaður sem framtíðarmaður á Anfield og á að sækja sér reynslu á öðrum vettvangi.

Markovic er 21 árs gamall og kom til Liverpool frá Benfica í Portúgal síðasta sumar, en kaupverðið var um 20 milljónir punda. Hann er uppalinn hjá Partizan í heimalandi sínu Serbíu og hefur skorað 3 mörk í 20 landsleikjum fyrir þjóð sína.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert