Kínverski Ramos á leið til Chelsea

José Mourinho, stjóri Chelsea.
José Mourinho, stjóri Chelsea. AFP

Englandsmeistarar Chelsea eru að fá til liðs við sig kínverska varnarmanninn Zhang Linpeng.

Enskir fjölmiðlar greina frá því í dag að samningur við leikmanninn hafi verið sendur út til Kína og vonast Chelsea menn til með að ganga frá félagaskiptunum áður en félagaskiptaglugganum verður lokað um mánaðarmótin.

Linpeng er 26 ára gamall sem leikur með kínverska úrvalsdeildariðinu Guangzhou Evergrande. Hann ber viðurnefið „Zhangmos“ en nafnið er höfðað til spænska landsliðsmiðvarðarins Sergio Ramos sem leikur með Real Madrid en Linpeng hefur verið líkt við Ramos.

<br/><br/>
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert