„Einbeittu þér að brjóstunum þínum“

Ryan Babel gróf sína eigin gröf á twitter á föstudagskvöldið.
Ryan Babel gróf sína eigin gröf á twitter á föstudagskvöldið. AFP

Ryan Babel, leikmaður Al Ain í Sameinuðu Arabísku furstadæmunum, viðhafði afar óviðeigandi ummæli í rökræðum sínum við knattspyrnuáhugamann á samfélagsmiðlinum twitter á föstudagskvöldið. Babel tjáði sig þá á afar karlrembulegan og ósmekklegan hátt í samræðum um Rafael Benitez, þjálfara Real Madrid. 

Knattspyrnuáhugamaðurinn spurði Babel hvers vegna hann legði fæð á Benitez og Babel svaraði því einfaldlega að hún ætti ekki að vera að ræða málefni tengd knattspyrnu þar sem hún væri stúlka. Hún ætti fremur að einbeita sér að því að stækka brjóstin sín og halda sér við það að ræða um svið sem væru kvenlægari.

Tíst knattspyrnuáhugamannsins og svar Babel má sjá hér að neðan.

Babel hefur síðan á föstudagskvöldið birt um það bil 30 færslur á twitter síðu sinni þar sem hann reynir með frekar klúðurslegum hætti að biðjast afsökunar á ummælum sínum, en undirtónn færslna hans er ennþá litaður af karlrembu.  

Babel boðar það svo í morgun að hann muni loka bæði fésbókarsíðu sinni og twitter aðgangi sínum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert