Spænski landsliðsmarkvörðurinn Victor Valdes mun ekki ganga til liðs við Besiktas eins og allt benti til fyrir helgi samkvæmt heimildum bbc.com. Forráðamenn Besiktas breyttu skilmálum samnings síns við Valdes á síðustu stundu og þær breytingar féllu ekki í kramið hjá Spánverjanum.
Valdes á ekki upp á pallborðið hjá Louis van Gaal, knattspyrnustjóra Manchester United, sem segir Valdes hafa neitað að spila með varaliði Manchester United á síðastliðnu keppnistímabili.
Valdes fékk ekki treyjunúmer hjá Manchester United fyrir tímabilið sem er nýhafið sem eru ansi skýr skilaboð um að hann verði að finna sér nýtt félag til þess að fá spiltíma.