„Ég verð frá í mánuð“

Sergio Aguero fór meiddur af velli í gær.
Sergio Aguero fór meiddur af velli í gær. AFP

Sergio Aguero, framherji Manchester City á Englandi, segist vera frá í mánuð vegna meiðsla sem hann hlaut gegn Ekvador í gær.

Aguero, sem er 27 ára gamall, er búinn að skora 8 mörk í 11 leikjum á þessari leiktíð með Manchester City en nú er útlit fyrir að hann missi af Manchester-slagnum, sem fer fram þann 24. október næstkomandi.

Argentínski framherjinn meiddist í leik gegn Ekvador í undankeppni HM í gær en hann staðfesti við fjölmiðla eftir leik að hann yrði líklega frá í mánuð.

„Ég held að ég verði frá í mánuð,“ sagði Aguero við fjölmiðla er búið var að útskrifa hann af spítalanum en það er mikill skellur fyrir City þar sem David Silva meiddist einnig í kvöld í leik með spænska landsliðinu gegn Lúxemborg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert