United enn með Mane í sigtinu

Sadio Mane.
Sadio Mane. AFP

Manchester United er enn með augastað á framherjanum Sadio Mane sem hefur spilað vel með liði Southampton.

Enska blaðið Manchester Evening News greinir frá því í dag að United hafi í hyggju að bjóða í leikmanninn en áður en félagaskiptaglugganum var lokað hinn 1. september bárust fréttir af áhuga Manchester-liðsin í Mane, sem er 23 ára gamall.

Mane hefur farið mikinn með Southampton síðustu vikurnar en hann hefur skorað þrjú mörk í síðustu fjórum leikjum liðsins og hafa varnarmenn andstæðinga Southampton átt í erfiðleikum með að hemja hann.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert