Fumlaus frumraun á Wembley

Alli fagnar marki í leik með félagsliði sínu, Tottenham.
Alli fagnar marki í leik með félagsliði sínu, Tottenham. AFP

Enski knattspyrnumaðurinn Dele Alli lék sinn fyrsta landsleik fyrir England í gær þegar liðið sigraði Eistland 2:0 í undankeppni EM á Wembley. Alli, sem er einungis 19 ára, kom inn á sem varamaður í síðari hálfleik.

Þetta var níundi sigur Englands í jafnmörgum leikjum í undankeppninni en England er ein þeirra þjóða sem hefur tryggt sér þátttökurétt á EM í Frakklandi á næsta ári. Alli var mjög ánægður að fá að taka þátt og leika sinn fyrsta landsleik.

Hann lét ánægju sín í ljós á twitter, eins og má sjá hér fyrir neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert