Meiðslavandræði hjá United

Marcos Rojo og Jesse Lingard fagna marki þess síðarnefnda gegn …
Marcos Rojo og Jesse Lingard fagna marki þess síðarnefnda gegn WBA. AFP

Manchester United er í meiðslavandræðum fyrir toppslaginn gegn Leicester á morgun en liðin eigast við á King Power vellinum í Leicester.

Fregnir herma að þeir Marcos Rojo og Jesse Lingard séu báðir meiddir og ekki leikfærir. Þar sem Phil Jones er einnig frá vegna meiðsla gæti Louis van Gaal þurft að setja hinn unga Paddy McNair í byrjunarliðið. Þá er Ander Herrera úr leik og Michael Carrick er sagður tæpur en hann hefur verið að glíma við meiðsli síðustu vikurnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert