Terry tæpur fyrir grannaslaginn

John Terry er hér borinn af velli í leik Chelsea …
John Terry er hér borinn af velli í leik Chelsea gegn Maccabi Tel Aviv á þriðjudaginn var. AFP

John Terry, fyrirliði Chelsea, er tæpur fyrir Lundúnaslag liðsins gegn Tottenham Hotspur sem fram fer á White Hart Lane í hádeginu á sunnudaginn. Terry meiddist á ökkla í sigri Chelsea gegn Maccabi Tel Aviv á þriðjudaginn var og er nú í kapphlaupi við tímann.  

„Það er möguleiki á því að Terry spili á sunnudaginn. Terry æfði ekki með liðinu í dag og við erum ekki vongóðir um að hann verði klár í tæka tíð, en það er ekki útilokað," sagði Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, á blaðamannafundi sem haldinn var í tilefni af leik liðsins gegn Tottenham Hotspur á sunnudaginn.

Þá er ansi ólíklegt að miðvallarleikmaðurinn Ramires taki þátt í leiknum á sunnudaginn, en hann meiddist á síðustu æfingu Chelsea fyrir leik liðsins gegn Maccabi Tel Aviv í Ísrael. ,

Það voru hins vegar einnig jákvæðar fregnir sem bárust úr herbúðum Chelsea á blaðamannafundinum, en Cesc Fabregas er leikfær þrátt fyrir að hafa meiðst á tá í sigurleiknum gegn Maccabi Tel Aviv.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert