Mislagðir fætur Benteke

Christian Benteke, leikmaður Liverpool, í baráttu við James Collins, leikmann …
Christian Benteke, leikmaður Liverpool, í baráttu við James Collins, leikmann West Ham í leik liðanna í kvöld. AFP

Christian Benteke, framherji Liverpool, var fyrirmunað að skora þegar Liverpool laut í lægra haldi gegn West Ham og féll úr leik í fjórðu umferð ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu karla í kvöld.

Benteke skaut níu sinnum að marki West Ham og átti þrisvar sinnum fleiri marktilraunir en næsti leikmaður Liverpool.

Benteke hefur nú mistekist að skora í síðustu 11 leikjum liðsins og belgíski landsliðsframherjinn á enn eftir að finna netmöskva andstæðinganna í leikjum Liverpool árið 2016. 

„Þetta er líklega ekki skemmtilegasti tíminn á ferlinum hans, en hann verður bara að leggja hart að sér og halda áfram. Hann þráir að skora og við þurfum á mörkum frá honum að halda. Við munum halda áfram að vinna með honum og reyna að bæta hans leik,“ sagði Klopp um frammistöðu Benteke í kvöld. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert