Johnson játaði kynferðisbrot

Adam Johnson.
Adam Johnson. AFP

Adam Johnson leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Sunderland hefur játað sekt sína í kynferðisbroti gagnvart unglingsstúlku en leikmaðurinn var í réttarsalnum í dag.

Johnson játaði brot sitt í tveimur ákæruliðum en neitaði tveimur gagnvart stúlkunni sem er 15 ára gömul. Johnson var handtekinn vegna málsins í mars í fyrra en var síðan sleppt eftir yfirheyrslu og hefur hann spilað á fullu með Sunderland á leiktíðinni.

Johnson, sem um tíma lék með Manchester City, á að baki 12 leiki með enska A-landsliðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert