Vill ólmur losna við Benteke frá Liverpool

Hér má sjá umrædda auglýsingu.
Hér má sjá umrædda auglýsingu. Skjáskot

Ónefndur stuðningsmaður Liverpool vill ólmur losna við framherjann Christian Benteke. Stuðningsmaðurinn setti upp auglýsingu á írsku síðunni adverts.ie þar sem Benteke er boðinn hverjum þeim sem vilja taka hann.

Belgíska framherjanum virtist fyrirmunað að skora þegar Liverpool tapaði fyrir West Ham, 2:1, í ensku bikarkeppninni í knattspyrnu í gærkvöldi. Hann skaut til að mynda níu sinnum að marki West Ham og átti þrisvar sinnum fleiri marktilraunir en næsti leikmaður Liverpool.

Benteke hefur ekkert skorað árið 2016 og stuðningsmaður Liverpool segir að hann taki óþarfa pláss og það sé ekki hægt að horfa upp á þessa spilamennsku lengur. Belginn var keyptur til Liverpool frá Aston Villa síðasta sumar fyrir 32,5 milljónir punda og hefur ekki þótt standa undir þeim væntingum sem til hans voru gerðar.

Benteke voru mislagðar fætur í leiknum í gær.
Benteke voru mislagðar fætur í leiknum í gær. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert