Vill feta í fótspor Sir Alex Ferguson

Pochettino vill byggja upp veldi hjá Tottenham.
Pochettino vill byggja upp veldi hjá Tottenham. AFP

Knattspyrnustjóri Tottenham, Mauricio Pochettino, vill byggja upp svipað veldi hjá Tottenham og Sir Alex Ferguson gerði hjá Manchester United.

Pochettino samþykkti í dag að framlengja samning sinn við Tottenham um tvö ár sem þýðir að nýr samningur rennur út árið 2021. Und­ir stjórn Arg­entínu­manns­ins hef­ur Totten­ham verið í harðri bar­áttu um Eng­lands­meist­ara­titil­inn í vet­ur en er nú reynd­ar komið sjö stig­um á eft­ir toppliði Leicester þegar þrjár um­ferðir eru eft­ir.

„Sir Alex Ferguson er mjög sérstök manneskja. Honum var veitt öryggi og traust til að byggja upp arfleið sína hjá Manchester United. Ég hef trú á því að við séum sérstakir og við getum byggt eitthvað svipað hér. Þetta félag er sérstakt,“ sagði Pochettino.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert