Lineker minntur á nærbuxurnar

Lineker verður að standa við stóru orðin.
Lineker verður að standa við stóru orðin. Ljósmynd/twitter

Gary Lineker sparkspekingur á BBC og fyrrverandi leikmaður Leicester City hefur verið rækilega minntur á færslu sína á twitter frá því í desember.

Þar sagðist Lineker að hann myndi stjórna fyrsta þætti sínum, Match of the Day, á næstu leiktíð á nærbuxunum einum klæða ef Leicester yrði Englandsmeistari.

Lineker skrifaði færsluna eftir 2:1 sigur Leicester gegn Chelsea um miðjan desember en Leicester tryggði sér Englandsmeistaratitilinn í gærkvöld þegar aðalkeppinautarnir í Tottenham gerðu 2:2 jafntefli gegn Chelsea.

Geðshræring hjá Gary Lineker

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert