United að undirbúa risatilboð

Leikmenn Manchester United fagna marki Anthony Martial.
Leikmenn Manchester United fagna marki Anthony Martial. AFP

Manchester United er sagt vera að undirbúa kauptilboð í franska sóknarmanninn Antoine Griezmann sem leikur með spænska liðinu Atlético Madrid.

Spænska blaðið El Confidencial greinir frá því að United ætli að bjóða 63 milljónir í punda í Griezmann en sú upphæð jafngildir 11,2 milljörðum íslenskra króna. Þetta er sú upphæð sem hægt er kaupa Griezmann út úr samningi sínum við Madridarliðið.

Griezmann er 25 ára gamall og hefur verið í stóru hlutverki hjá Atlético Madrid sem er komið í úrslit Meistaradeildarinnar og er í harðri baráttu við Barcelona og Real Madrid um Spánarmeistaratitilinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert