West Ham með tilboð í Bacca

Carlos Bacca.
Carlos Bacca. AFP

West Ham hefur lagt fram 15 milljón punda tilboð í kólumbíska framherjann Carlos Bacca sem leikur með ítalska liðinu AC Milan.

Sky Sports hefur heimildir fyrir þessu en forráðamenn Mílanóliðsins hafa sett 19 milljón punda verðmiða á Bacca.

Bacca, sem verður þrítugur í næsta mánuði, skoraði 18 mörk á sínu fysta tímabili með AC Milan en félagið fékk hann frá Sevilla í fyrra og greiddi fyrir hann 21,3 milljónir punda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert