Hjólhestaspyrna hjá Zlatan

Zlatan Ibrahimovic í Gautaborg í kvöld.
Zlatan Ibrahimovic í Gautaborg í kvöld. AFP

Ekki verður annað sagt en að sænska goðsögnin Zlatan Ibrahimovic hafi byrjað með látum hjá Manchester United í fyrsta leik sínum fyrir félagið.

United spilaði vináttuleik við tyrkneska stórveldið Galatasaray og Svíinn skoraði glæsilegt mark með hjólhestaspyrnu. 

Til að toppa allt saman fór leikurinn fram í Svíþjóð, heimalandi Zlatans Ibrahimovic sem alinn er upp í Malmö. Leikurinn fór fram á Ullevi-leikvangnum. 

United vann 5:2. Hin mörkin skoruðu Juan Mata, Fellaini og Wayne Rooney skoraði tvívegis. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert