Öflugt stig hjá Middlesbrough

Middlesbrough mætir WBA.
Middlesbrough mætir WBA. AFP

WBA og Middlesbrough gerðu markalaust jafntefli í 3. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag en leikið var á The Hawthornes. Middlesbrough er áfram taplaust.

Leik lokið. Markalaust á Hawthornes.

64. Það er W.B.A sem er að ógna meira í síðari hálfleiknum. Lítið um færi hins vegar. Phillips átti eitt ágætis færi en það fór af varnarmanni og framhjá. Annars tíðindalítið.

46. Síðari hálfleikur er hafinn.

Hálfleikur. WBA hefur verið betri aðilinn í þessum leik. Rondon fékk dauðafæri undir lok fyrri hálfleiks en honum tókst að klúðra því á einhvern ótrúlegan hátt.

1. Leikurinn er hafinn.

0. Lýsingin verður uppfærð hér fyrir ofan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert