Hart lánaður til Torino

Joe Hart er á leið til Torino.
Joe Hart er á leið til Torino. AFP

Enski landsliðsmaðurinn Joe Hart er á leið til ítalska A-deildarliðsins Torino á láni frá Manchester City, en helstu miðlar á Englandi greina frá þessu.

Hart hefur verið aðalmarkvörður City síðustu ár, en hann á yfir 260 leiki fyrir félagið auk þess sem hann er aðalmarkvörður enska landsliðsins.

Pep Guardiola tók við City í sumar og fékk til sín Claudio Bravo frá Barcelona. Bravo verður aðalmarkvörður City og Willy Caballero annar á eftir honum.

Hart er nú á leið til Torino, þar sem hann mun gera lánssamning út tímabilið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert