Bony lánaður til Stoke

Bony með boltann í leik með Manchester City.
Bony með boltann í leik með Manchester City. AFP

Sóknarmaðurinn Wilfred Bony hefur verið lánaður frá Manchester City til Stoke City út yfirstandandi keppnistímabil.

Bony, sem er 27 ára gamall, gekk til liðs við Manchester City frá Swansea í janúar í fyrra. Hann hefur ekki náð að festa sig í sessi í liði Manchester City og er því lánaður til Stoke.

„Ég þakka stuðningsmönnum Manchester City fyrir stuðninginn. Ég hlakka til spennandi tíma hjá Stoke í vetur,“ sagði Bony eftir að hann skrifaði undir samning við Stoke í morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert