Nasri kominn til Sevilla

Samir Nasri.
Samir Nasri. AFP

Manchester City staðfesti nú rétt í þessu að það hefði lánað franska miðjumanninn Samir Nasri til spænska liðsins Sevilla.

Nasri mun leika með Sevilla út leiktíðina. Nasri er 29 ára gamall og kom til Manchester City frá Arsenal árið 2011. Hann hefur leikið 124 deildarleiki með City og hefur í þeim skorað 18 mörk.

Fyrr í dag bárust af því fregnir að Manchester City hafi lánað sóknarmanninn Wilfried Boy til Stoke City.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert