Tottenham án fimm í Rússlandi í kvöld

Harry Kane meiddist í ökkla í leik gegn Sunderland 18. …
Harry Kane meiddist í ökkla í leik gegn Sunderland 18. september. AFP

Tottenham verður án fimm leikmanna vegna meiðsla þegar liðið sækir CSKA Moskvu heim í kvöld í E-riðli Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu.

Harry Kane er meiddur í ökkla en Tottenham verður einnig án bakvarðarins Danny Rose og miðjumannanna Eric Dier, Mousa Dembélé og Moussa Sissoko.

Dier, Rose og Dembélé glíma við meiðsli aftan í læri en Sissoko fékk heilahristing í sigrinum á Middlesbrough á laugardag.

Tottenham tapaði fyrsta leik sínum í riðlinum gegn Monaco en CSKA gerði jafntefli við Leverkusen.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert