„Costa getur skorað í hverjum leik“

Diego Costa í leiknum í dag.
Diego Costa í leiknum í dag. AFP

Antonio Conte, knattspyrnustjóri Chelsea á Englandi, var ánægður með 2:0 sigur liðsins á Hull City í sjöundu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag. Costa skoraði síðara mark leiksins.

Chelsea hafði ekki unnið í síðustu þremur deildarleikjum sínum fyrir leikinn í dag en liðið var búið að vinna fyrstu þrjá leikina áður en ágúst kláraðist.

Willian og Diego Costa sáu til þess að Chelsea færi með sigur af hólmi í dag en Conte var í skýjunum með Costa.

„Þetta er frábært fyrir okkur og auðvitað fyrir Costa líka. Hann er kominn með sex mörk fyrir okkur en hann fær tækifæri í hverjum einasta leik til þess að skora mörk. Það er mikilvægt að hann skoraði í dag en hann lagði einnig á sig mikla vinnu í leiknum,“ sagði Conte.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert