Gylfi Þór Sigurðsson er í byrjunarliði Swansea sem mætir Liverpool í sjöundu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu karla klukkan 11.30 í dag.
Gylfi Þór hefur spilað í öllum sex leikjum Swansea City í deildinni á yfirstandandi leiktið, en hann hefur fimm sinnum verið í byrjunarliði liðsins og einu sinni komið inná sem varamaður.
Gylfi Þór hefur skorað eitt mark í þessum sex leikjum fyrir Swansea City, en hann skoraði annað marka liðsins úr vítaspyrnu í 2:2 jafntefli gegn Chelsea.