Leikmenn veðjuðu á eigin leiki

Harry Redknapp við stjórnvölinn hjá QPR.
Harry Redknapp við stjórnvölinn hjá QPR. AFP

Harry Redknapp, sem stýrt hefur Bournemouth, West Ham United, Portsmouth, Southampton, Tottenham Hotspur og Queens Park Rangers á knattspyrnustjóraferli sínum, tjáði Daily Telegraph það að leikmenn sínir hafi veðjað á úrslit í leikjum sem þeir sjálfir spiluðu. 

Slík veðmál eru brot á reglum enska knattspyrnusambandsins og leikmönnum er í raun bannað að veðja á leiki í öllum deildarkeppnum enska fótboltans. Ekki kom fram í samtali Redknapp við Daily Telegraph hjá hvaða liði sem Redknapp stýrði leikmennirnir sem stunduðu þessa iðju léku.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert