Brjálaðir út í Zlatan

Zlatan Ibrahimovic.
Zlatan Ibrahimovic. AFP

Margir stuðningsmenn Manchester United eru mjög óhressir með Svíann Zlatan Ibrahimovic eftir leikinn gegn Chelsea á Stamford Bridge í dag.

Margir stuðningsmenn Manchester United brugðust illa við þegar þeir sáu Svíann skælbrosandi taka í höndina á Eden Hazard eftir leikinn og hafa treyjuskipti við leikmann Chelsea en eftir góða byrjun með Manchester-liðinu hefur Zlatan ekki náð að skora í fimm leikjum í röð.

Hér má sjá nokkur viðbrögð stuðningsmanna United sem þeir skrifuðu á twitter síður sínar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert