Eiður hefur enn dálæti á Mourinho

Eiður Smári Guðjohnsen óraði ekki fyrir þeim viðbrögðum sem twitter-færsla …
Eiður Smári Guðjohnsen óraði ekki fyrir þeim viðbrögðum sem twitter-færsla hans fékk. mbl.is/Golli

Kaldhæðnisleg kveðja Eiðs Smára Guðjohnsen til José Mourinho á Twitter-síðu Eiðs Smára á meðan á leik Chelsea og Manchester United stóð fór eins og eldur um sinu um veraldarvefinn í dag. 

Lesa má um skot Eiðs Smára á Mourinho hérna

Eiður Smári sagði síðan í annarri færslu á Twitter-síðu sinni rétt í þessu að hann undraðist þau miklu viðbrögð sem hann hefði fengið við fyrri færslu sinni og hann væri enn dyggur aðdáandi Mourinhos. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert