Bailly úr leik næstu tvo mánuðina

Eric Bailly, lengst il vinstri, í baráttunni gegn Chelsea á …
Eric Bailly, lengst il vinstri, í baráttunni gegn Chelsea á sunnudaginn. AFP

Eric Bailly, miðvörðurinn frá Fílabeinsströndinni sem leikur með Manchester United, verður frá keppni næstu tvo mánuðina.

Bailly meiddist á hné í 4:0 tapi United gegn Chelsea á sunnudaginn og var óttast að meiðslin væru mjög alvarleg og að leikmaðurinn væri hugsanlega úr leik út tímabilið en fregnir úr herbúðum Manchester-liðsins herma að hann verði á sjúkralistanum næstu tvo mánuðina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert