Gerði það sem hann á að gera

Jürgen Klopp.
Jürgen Klopp. AFP

Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, var heilt yfir sáttur við frammistöðu sinna manna í leiknum gegn Tottenham á Anfield í kvöld þar sem Liverpool fagnaði 2:1 sigri í 16 liða úrslitum ensku deildabikarkeppninnar í knattspyrnu.

„Leikurinn var eins og ég reiknaði með, jákvæður fyrir okkur. Við misstum aðeins einbeitinguna og gerðum okkur aðeins erfitt fyrir. En heilt yfir var þetta jákvætt hjá okkur og verðskuldaður sigur.

Sturridge gerði það sem hann á að gera. Þetta var frábært hjá honum en hann hefði getað skorað þrjú eða fjögur mörk. Þá stóðu allir ungu strákarnir sig vel. Þeir geta spilað betur, en miðað við pressuna sem var á þeim og kringumstæðurnar gerðu þeir vel,“ sagði Klopp.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert