Chelsea úr leik

Pedro Obiang með boltann í leiknum í kvöld.
Pedro Obiang með boltann í leiknum í kvöld. AFP

Southampton og West Ham United eru komin áfram í 8 liða úrslit enska deildabikarsins í knattspyrnu, en það varð ljóst í kvöld. Chelsea er úr leik.

Southampton bar sigur úr býtum gegn Sunderland, en leiknum lauk með 1:0 sigri heimamanna þar sem dýrasti leikmaðurinn í sögu félagsins, Sofiane Boufal, skoraði á 66. mínútu leiksins.

West Ham United vann Chelsea á meðan í Lundúnaslag, 2:1. Cheikhou Kouyate kom West Ham á bragðið áður en Edmilson Fernandes bætti við öðru. Chelsea tók ekki við sér fyrr en í lok leiks. Eden Hazard var nálægt því að skora undir lokin en boltinn fór í tréverkið.

Gary Cahill minnkaði muninn í uppbótartíma en lengra komust lærisveinar Antonio Conte ekki og lokatölur því 2:1 fyrir West Ham. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert