„Við erum ánægðir“

Jose Mourinho og Pep Guardiola.
Jose Mourinho og Pep Guardiola. AFP

Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City á Englandi, var sáttur við frammistöðu liðsins þrátt fyrir 1:0 tap gegn Manchester United í 16 liða úrslitum enska deildabikarsins í kvöld.

Juan Manuel Mata sá til þess að United færi með sigur af hólmi í dag, en liðið hefndi fyrir tapið í deildinni á dögunum.

Guardiola var sáttur við frammistöðuna í dag.

„Ég er stoltur af ungu leikmönnunum og hvernig þeir spiluðu. Á þessu stigi skiptir herslumunurinn máli og það er erfitt að hafa hann ekki gegn United. Við erum hins vegar ánægðir,“ sagði Guardiola.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert