Memphis á förum frá United?

Memphis Depay.
Memphis Depay. AFP

Hollenski miðjumaðurinn Memphis Depay gæti verið á förum frá Manchester United, en hann hefur verið í aukahlutverki hjá liðinu síðan José Mourinho tók við liðinu í sumar.

Memphis er sterklega orðaður við ítalska félagið Roma í fjölmiðlum ytra í dag, en hinn 22 ára gamli Hollendingur er með sama umboðsmann og landi sinn Kevin Strootman sem spilar með Roma.

Memphis kom til United frá PSV fyrir rúmu ári síðan, en hann er talinn falur fyrir um 20 milljónir punda og gæti hugsað sér til hreyfings strax í janúar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert