Magnað víti (myndskeið)

Lee Trundle fyrrum leikmaður Swansea skoraði á óvenjulegan hátt úr vítaspyrnu í góðgerðaleik á Bretlandseyjum á sunnudaginn. 

Trundle spilaði fyrir lið sem kallaðist Swansea All Stars og andstæðingurinn var Briton Ferry Llansawel skipað leikmönnum 35 ára og eldri. En það er kannski aukaatriði þar sem um góðgerðaleik var að ræða. Aðalatriðið er hvernig Trundle framkvæmdi spyrnuna en það má sjá í meðfylgjandi myndskeiði. 

Trundle lék með Swansea á árunum 2003-2007 og aftur 2009-2010. Hann eyddi öllum sínum ferli í neðri deildunum á Bretlandseyjum en þótti þó afskaplega teknískur og flinkur með boltann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert