Gylfi í byrjunarliðinu í botnslagnum

Gylfi Þór Sigurðsson í baráttu við Paul Pogba í leik …
Gylfi Þór Sigurðsson í baráttu við Paul Pogba í leik Swansea City og Manchester United fyrr á leiktíðinni. AFP

Gylfi Þór Sigurðsson er á sínum stað í byrjunarliði Swansea City sem mætir Sunderland í botnbaráttuslag í 15. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu karla klukkan 15.00 í dag. 

Gylfi Þór hefur leikið 14 deildarleiki fyrir Swansea City á yfirstandandi leiktið og skorað í þeim leikjum fjögur mörk.

Swansea City er á botni deildarinnar með níu stig fyrir leik liðanna í dag, en Sunderland og Hull City sem eru í sætunum fyrir ofan Swansea City hafa hvort um sig 11 stig.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert