Hvetja Conte til að fá Hart

Joe Hart er á láni hjá Torino en forráðamenn félagsins …
Joe Hart er á láni hjá Torino en forráðamenn félagsins segja launakröfur hans of háar til þess að félagið reyni að eignast markvörðinn. AFP

Enska götublaðið The Sun fullyrðir að nokkrir af eldri leikmönnum Chelsea hafi hvatt knattspyrnustjórann Antonio Conte til að freista þess að fá markvörðinn Joe Hart til félagsins.

Þetta vilja leikmennirnir fari svo að Thibaut Courtois verði seldur til Real Madrid en Belginn hefur verið orðaður við Evrópumeistarana síðustu mánuði.

Hart virðist ekki eiga sér framtíð hjá Manchester City en hann er á láni frá félaginu hjá Torino á Ítalíu. Pep Guardiola, stjóri City, ákvað að treysta frekar á Claudio Bravo.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert