Tottenham meistari innan fjögurra ára

Redknapp hefur mikla trú á sínum fyrrverandi lærisveinum.
Redknapp hefur mikla trú á sínum fyrrverandi lærisveinum. AFP

Tottenham verður enskur meistari í knattspyrnu á næstu fjórum árum ef eitthvað er að marka fyrrverandi knattspyrnustjóra félagsins, Harry Redknapp. 

Hinn 69 ára gamli Redknapp kom Tottenham í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar árið 2011 og segir hann að Tottenham sé með besta leikmannahóp ensku úrvalsdeildarinnar. 

„Tottenham hefur spilað virkilega undir stjórn Mauricio Pochettino. Það er æðislegt að fylgjast með þeim. Tottenham verður enskur meistari á næstu 3-4 árum.“

Félagið hefur ekki orðið enskur meistari síðan árið 1961 en Redknapp hefur trú á því sem félagið er að gera. 

„Félagið hefur ekki verið að eyða sérstaklega miklum peningum en samt finnst mér leikmannahópurinn sá sterkasti í ensku deildinni,“ sagði Redknapp. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert