Kompany ekki klár í slaginn

Vincent Kompany, fyrirliði Manchester City.
Vincent Kompany, fyrirliði Manchester City. AFP

Vincent Kompany, fyrirliði Manchester City, verður ekki klár í slaginn fyrir leikinn gegn Mónakó í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu á morgun.

Kompany hefur verið frá vegna meiðsla meira og minna síðan í nóvember, eftir að hafa verið áður mikið frá vegna meiðsla í byrjun tímabils.

„Hann verður klár gegn Huddersfield,“ sagði knattspyrnustjórinn Pep Guardiola á fréttamannafundi í dag, en City mætir Huddersfield í FA-bikarnum í næstu viku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert