Yfirlýsing frá Rooney

Wayne Rooney.
Wayne Rooney. AFP

Wayne Rooney, fyrirliði Manchester United, hefur ákveðið að halda kyrru fyrir hjá liðinu en hann hefur á síðustu dögum verið sterklega orðaður við lið í Kína sem hafa sótt fast eftir því að fá hann í sínar raðir.

„Þrátt fyrir að mér hafi verið sýndur áhugi af öðrum liðum, sem ég er þakklátur fyrir, þá vil ég binda enda á allar vangaveltur og greina frá því að ég verð áfram hjá Manchester United.

Ég vona að ég geti hjálpað liðinu í baráttu þess að ná árangri í þeim fjórum keppnum sem við erum með í. Þetta eru spennandi tímar hjá félaginu og ég vill vera áfram partur af því,“ segir í yfirlýsingu sem Rooney sendi frá sér í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert