Ferguson 100% sigursælli en Mourinho

José Mourinho fagnar með bikarinn í kvöld.
José Mourinho fagnar með bikarinn í kvöld. AFP

Sigur Manchester United í enska deildabikarnum í dag er 24. titillinn sem José Mourinho vinnur á ferli sínum.

Mourinho er nú búinn að vinna nákvæmlega helminginn af fjölda titla sem Sir Alex Ferguson vann á ferli sínum, en hann landaði 48 titlum á sínum tíma.

Þetta var jafnframt í 5. sinn sem liðið vinnur þennan titil, og hefur aðeins Liverpool unnið hann oftar, eða 8 sinnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert