„Þeir áttu ekki skilið að tapa“

Mourinho og Paul Pogba voru kátir eftir leikinn í dag.
Mourinho og Paul Pogba voru kátir eftir leikinn í dag. AFP

José Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, hrósaði Zlatan Ibrahimovic eftir að United varð deildabikarmeistari eftir 3:2-sigur á Southampton í dag.

„Hann vann leikinn fyrir okkur og var frábær. Zlatan var frábær í leik þar sem andstæðingurinn var betri en við stóran hluta leiksins,“ sagði Mourinho eftir leikinn en Zlatan tryggði United sigurinn með marki á 87. mínútu.

„Þeir áttu skilið að fara í framlengingu og áttu ekki skilið að tapa. Zlatan gerði gæfumuninn og vann bikarinn fyrir okkur,“ sagði Mourinho sem gat ekki leynt tilfinningum sínum.

„Það er ekki auðvelt að vinna svona marga titla og það er ekki auðvelt að vera undir svona mikilli pressu. Það er alltaf sérstakt að vinna titla. Dagurinn sem ég verð ekki meyr þegar ég vinn er dagurinn þegar ég fer heim,“ sagði Mourinho.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert