Agüero vill fara til Real Madrid

Sergio Agüero.
Sergio Agüero. AFP

Argentínski sóknarmaðurinn Sergio Agüero er sagður vilja yfirgefa herbúðir Manchester City í sumar.

Enska blaðið The Sun greinir frá því í dag að Agüero vilji fara til Evrópumeistara Real Madrid en Argentínumaðurinn hefur skorað 113 mörk í 169 leikjum í ensku úrvalsdeildinni frá því hann kom til liðsins fyrir sex árum.

Verðmiðinn á Agüero, sem er 28 ára gamall, er talinn vera um 60 milljónir punda en sú upphæð jafngildir um 8,2 milljörðum íslenskra króna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert